Fara í efni

Krónan sendir heim úr búðinni

Deila frétt:

Krónan hefur nú hafið heimsendingu á matvöru til Kjósverja. Innkaup eru gerð í gegnum KrónuAppið þar sem skrá þarf inn viðeigandi upplýsingar. Við skráningu á heimilsfangi er byrjað á að velja póstnúmer 276 og svo leiðir appið viðskiptavini áfram, meðal annars í að staðsetja húsið rétt, sem er mjög mikilvægt. Heimsendingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum en takmörkuð pláss eru í hverri sendingu. Við fögnum þessari góðu þjónustu og vonum að hún nýtist íbúum vel.