Kynning á lýsingu á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps í landi Flekkudals.
20.04.2015
Deila frétt:
Sveitarstjórn Kjósarhrepps auglýsir samkvæmt 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu á breytingartillögu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2005-2017 - Skilgreining svæða fyrir frístundabyggð. Lýsingargögn og drög að umhverfisskýrslu verða kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum þann 22 og 29 apríl 2015 með opnu húsi á skrifstofu Kjósarhrepps á milli kl. 13-18 að Ásgarði. Má skoða hér. Ábendingum við efni lýsingarinnar skal skila fyrir 1. maí 2015 á skrifstofu sveitarfélagsins eða á jon@kjos.is.
Jón Eiríkur Guðmundsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps.