Fara í efni

Kynning á vinnslutillögu að nýju Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036

Deila frétt:

Í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt vinnslutillaga að nýju aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036.

Vinnslugögnin verða aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.kjos.is en gögnin samanstanda af greinargerð og skipulagsuppdrætti.

Þeir sem vilja koma með ábendingar eða athugasemdir við vinnslutillöguna geta skilað þeim á netfangið ask@kjos.is fyrir lok dags. 30. nóvember 2025.

Endanleg tillaga verður kynnt almenningi með formlegum hætti og auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga 123/2010 í kjölfarið þar sem öllum gefst aftur tækifæri á að koma með athugasemdir.

Kynning á vinnslutillögu
Skipulagsuppdráttur