Kynningar- og umræðufundur um hitaveitumál - 12. mars nk
01.03.2016
Deila frétt:
Laugardaginn 12. mars kl. 14:00 í Félagsgarði,
verður kynningar- og umræðufundur um
væntanlega hitaveitu í Kjósinni.
Stjórn Kjósarveitna hefur ákveðið að lengja svarfrestinn vegna þátttöku til 20. mars nk.
Þessa dagana er verið að safna saman og
flokka fyrirspurnir sem borist hafa til veitunnar í kjölfar þátttöku skuldbindinga sem sendar voru út í febrúar.
Ef einhverjir hafa ekki fengið skjölin þá er hægt að sækja þau á undirsíðunni EYÐUBLÖÐ hitaveita
Alls hafa 21 umsókn borist um starf rekstrarstjóra Kjósarveitna og
þriðjudaginn 8. mars nk verða opnuð tilboð í vinnuna.
Þannig að ekki er hægt að segja annað en það er líf og fjör í Kjósinni.
Takið laugardaginn 12. mars frá - sjáumst í Félagsgarði kl. 14
Með kveðjum
Stjórn Kjósarveitna