Fara í efni

Mannabein fundust í sumarhúsahverfi í Kjós

Deila frétt:

Mannabein fundust á víðavangi í Kjósarhreppi um kvöldmatarleitið á Páskadag. Fundurinn var þegar tilkynntur til lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu. Um var að ræða hauskúpu, tíu til þrjátíu ára gamla samkvæmt fyrstu vísbendingum. Samkvæmt óljósum heimildum mun hauskúpan vera af kvenmanni.Um ellefu leitið voru lögreglumenn úr tæknideild lögreglunar að rannsaka svæðið og ljósabíll frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins mættur til að lýsa upp vetfang. Að sögn Guðjóns Grétarssonar lögreglumanns, sem var á staðnum, var ákveðið að fresta ýtarlegri rannsókn á vettvangi til morguns þar sem ekkert fleira hefði komið í ljós.

Ekki er hægt að greina frá nánari staðsetningu vegna rannsóknarhagsmuna.