Margir viðburðir á vegum "Upplifðu allt hópsins"
10.11.2008
Deila frétt:
Upplifðu allt hópsins - All Senses Group á Vesturlandi stendur fyrir viðamikilli dagskrá í nóvember mánuði.
Eitt af markmiðum verkefnisins er að kynna Vesturland sem áhugaverðan kost fyrir innlenda og erlenda ferðamenn.
Margt verður í boði um allt Vesturland ; leiksýningar, námskeið, upplestar, fyrirlestrar, tónleikar, sagnahátíð, rúnalestur, jólamarkaður, julefrokost að hætti Dana, að ógleymdum kaffi- og jólahlaðborðum ýmiss konar.
Ferðaþjónustan á Hjalla og Ferðaþjónustan í Eyrarkoti eru þátttakendur í starfi hópsins, en hópurinn hélt aðalfund sinn í Eyrarkoti í síðustu viku.
Smellið HÉR til að skoða auglýsinguna um viðburði eða á meira og þá opnast dagskráin hér neðan við.