Fara í efni

Matvælasjóður formlega tekinn til starfa

Deila frétt:
Matvælasjóður
Matvælasjóður

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði þann 2. september formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2020

Nánar á vef stjórnarráðsins og Matvælasjóð