Fara í efni

Mennta- og menningarsjóður fyrir Kjósverja opinn fyrir styrkumsóknum

Deila frétt:
Guðni Guðnason frá Eyjum I í Kjós
Guðni Guðnason frá Eyjum I í Kjós

Árið 2012 stofnaði Guðni Guðnason, Mennta- og menningarsjóð fyrir Kjósverja og því munu þær áherslur sem hann hafði á samhjálp í lifanda lífi,  lifa áfram í verki fyrir tilstilli sjóðsins. Guðni lést 99 ára að aldri árið 2014.

Markmið sjóðsins er að efla menntun og menningu í Kjósarhreppi með styrkjum úr sjóðnum. Sjóðinn stofnaði Guðni til minningar um Orm Vigfússon (1576-1675) sem var sýslumaður í Eyjum í Kjós og hans konu Guðríði Þórðardóttur. Það að koma sjóðnum á laggirnar var gjöf Guðna til sveitarinnar sem hann unni svo mjög.   

Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum og skulu skriflegar umsóknir berast Guðbrandi Jóhannessyni landsréttarlögmanni, Sundagörðum 2, 104 Reykjavík, eigi síðar en 1. febrúar 2020.

Stjórn sjóðsins hvetur íbúa Kjósarhrepps til að sækja um styrk úr sjóðnum.
Styrkfjárhæðin nemur kr. 150.000,- og rennur til eins eða fleiri umsækjanda. 

Í umsókninni sem að hámarki má vera 3 blaðsíður, skal rökstyðja af hverju sótt er um styrkinn m.t.t. markmiðs sjóðsins.
Umsækjendur mega hvort heldur vera einstaklingur/-ar eða félög.

Fyrir árslok 2020 mun ákvörðun stjórnar sjóðsins liggja fyrir. Stjórnin áskilur sér rétt til að hafna umsóknum ef þær uppfylla ekki þær kröfur sem hún gerir.

 Nánari upplýsingar veitir Guðbrandur Jóhannesson landsréttarlögmaður (gudbrandur@logsund.is)