Mikil hætta á gróðureldum
Undanfarnir mánuðir hafa verið óvenju þurrir og gróður víða orðinn eldfimur. Af því tilefni viljum við minna íbúa á að öll meðferð opins elds er nú sérstaklega varasöm og getur auðveldlega valdið sinueldum með alvarlegum afleiðingum fyrir fólk, eignir og náttúru.
Við hvetjum því alla til að sýna fyllstu aðgát: forðast að kveikja eld utandyra, fylgjast vel með grillum og slökkvitækjum, og ganga úr skugga um að sígarettur eða annar eldur komist ekki í gróður. Jafnvel lítill neisti getur nægt til að kveikja eld við þessar aðstæður.
Með samstilltu átaki getum við dregið úr hættu á sinueldum og verndað umhverfi okkar. Við þökkum íbúum fyrir skilning og ábyrgð. Eldklöppur ættu að vera til taks hjá öllum sumarbústaðaeigendum.
Ekkert kemur í stað þjálfaðra brunavarða og mikilvægt að hafa samband við 112 ef gróðurelda verður vart. Við hvetjum fólk til að kynna sér leiðbeiningar um forvarnir og fyrstu viðbrögð við gróðureldum á www.grodureldar.is