Mikil óánægja veiðikortshafa við Meðalfellsvatn
18.06.2008
Deila frétt:
Mikil óánægja er meðal sumarhúsaeigenda við Meðalfellsvatn vegna framkvæmda í Bugðu. Að sögn Páls Björgvinssonar, formanns félags sumarhúsaeigenda, sem hafði samband við kjós.is vegna málsins, er talið að þverstíflan í Bugðu rétt neðan við ós Meðalfellsvatns hafi þau áhrif að lax komist ekki uppí vatnið. Hann bendir á að sumarhúsaeigendur hafi þegar keypt veiðileyfi hjá veiðikortinu og veiðileyfin hafi hingað til gefið von um að lax veiddist í vatninu, en hann telur þá von úti.
Þá segir hann að hann hafi haft samband við Árna Ísaksson hjá Matvælastofnun og hefði hann metið, að þverunin í ánni hindraði fiskgengd um ána og upp í vatnið.