Minningarsjóður Reynivallakirkju
Árið 1986 stóð þáverandi prestfrú að Reynivöllum Anna Margrét Höskuldsdóttir fyrir því að minningarsjóður Reynivallakirkju væri stofnaður með það að markmiði að styðja við rekstur Reynivallakirkju ásamt því að minnast látins ástvinar og senda hlýjarkveðjur til vina og vandamanna.
![]() |
Fyrir fé úr sjóðnum hefur ýmislegt verið lagfært, endurbætt og nýjasta verkefni sjóðsins var að fjármagna útilýsingu fyrir kirkjuna.
Umsjón með minningarsjóðnum í dag hefur Sigríður Klara Árnadóttir, formaður sóknarnefndar og starfsmaður Kjósarhepps.
Hægt er að ganga frá greiðslum í minningarsjóðinn á skrifstofu Kjósarhrepps í Ásgarði, í síma: 566-7100 eða með tölvupósti sigridur@kjos.is
Bankareikningur: 0315-13-300587
Kennitala: 530269-4349
Auk þess eru til sölu tækifæriskort af Reynivallakirkju á 100 kr stykkið. Bæði er hægt að fá kort án texta og með jólakveðju, umslag fylgir.
Allur ágóði af sölu kortanna rennur í Minningarsjóð Reynivallakirkju
![]() |
![]() |
|
|
Minningarkort Teikning: Áslaug Sverrisdóttir |
Tækifæriskort Reynivallakirkja byggð 1859-60, stækkuð og endurbyggð 1959. Grafíkmynd: Einar Hákonarson 1983 |


