Neyðarástand skapaðist í Hvammsvík
29.08.2008
Deila frétt:
Kalla þurfti út björgunarsveitir til að bjarga mönnunum Köfunarþjónustunnar sem unnu við björgun gamla Þórs í Hvammsvík seinni partinn í dag. Neyðarástand skapaðist þegar gúmmíbátur sem notaður var við að ferja mannskap varð vélvana með einum manni um borð og tók að reka út á fjörð í mjög slæmu veðri. . Björgunarbátur frá Landhelgisgæslunni var fyrstur til leitar að bátnum sem rak síðan að landi við norðanverðan Hvalfjörð. Manninn sakaði ekki. Gæslan flutti síðan starfsmenn Köfunarþjónustunnar í land frá Þór.