Nýborin, útigengin ær á Eyjadal
25.05.2008
Deila frétt:
Göngumaður sem átti leið um Eyjadal gekk fram á þessa nýbornu á, fremst á dalnum þann 27. apríl. Svo virðist að ærin sé útigengin og ágætlega á sig komin. Athygli vakti að ærin hafði borið þremur lömbum.
Nokkuð hefur verið um að fé hafi verið að skila sér af Esju í vor þrátt fyrir að heimamenn í Kjós hafi verið búnir að leita af sér allan grun um óheimt fé í hreppnum.
Kvarta hefur verið við Reykjavíkurborg að smalamennskur í Reykjavíkurhreppi hafa ekki verið framkvæmdar sem skyldi síðast liðið haust, í vestanverðri Esju, þar sem áður tilheyrði Kjalarneshreppi og það kunni að vera skýringin á að fé sé að skila sér til byggða fram á sauðburð.