Nýjar vísbendingar í hauskúpumálinu
24.03.2008
Deila frétt:
Grunur heimamanna, um að hauskúpa sú er fannst í Kjós væri tengd gömlu hjólhýsi sem flutt var á svæðið frá Laugavatni fyrir ekki svo löngu og hafi splundrast í í austan stórvirði um síðustu áramót, virðist á rökum reistur. Nú hefur núverandi eigandi hjólhýsisins gefið sig fram og upplýst að hauskúpa, er hann hefði talið vera af dýri, hefði verið meðal húsmuna hjólhýsisins. Eigandanum er ekki fullkunnugt um hver sé uppruni hauskúpunnar, enda hafi hann aldrei gert sér í hugalund um mannabein væri um að ræða. Hann kveðst, að honum hafi sett hroll við tilhugsunina um að í húsakynnum sínum hafi verið raunverulegt mannabein.
Ekkert hefur enn komið fram af hverjum hauskúpan hafi verið en rannsókn lögreglunar mun halda áfram.