Fara í efni

Opinn dagur, hnitmiðuð fræðsla á Reynivöllum

Deila frétt:

 

Á Reynivöllum hefur verið kirkja frá landnámstíð eftir því sem best verður séð. Kirkjan sem þar er nú var reist árið 1859. Staðurinn býr yfir mikilli sögu enda alla tíð í þjóðbraut. Þar var þinghús sveitarinnar og fyrsti barnaskólinn, einnig var þar stundað fyrsta fiskeldi á Íslandi, 1884-6.           

             

Sóknarpresturinn, dr. Gunnar Kristjánsson, flytur fræðsluerindi um sveitina og kirkjustaðinn kl. 17.