Fara í efni

Opinn dagur, kátt í Kjós- Miðdalur

Deila frétt:

Bærinn Miðdalur er einn þeirra staða sem stendur gestum opinn 21. júlí. Bærinn stendur í samnefndum dal milli Eyrarfjalls og Esju við veg 460. Þar er stundaður blandaður búrekstur, aðallega mjólkurframleiðsla með 28 kúm auk svolítillar nautakjöts-framleiðslu. Um 40 vetrarfóðraðar ær eru á bænum og um 30 hross, bæði í ræktun og reiðhross. Þá eru um 20 landnámshænur á hlaðinu og auk þess íslenskir hundar og kettir. Á vorin koma grunnskólar og leikskólar í heimsókn og fá að sjá dýrin í sínu rétta umhverfi, upplifa sveitina og komast í snertingu við dýrin. Mjólkursamsalan verður með kynningu á vörum yfir daginn.