Fara í efni

Ratsjáin fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Deila frétt:

Í dag skrifuðu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastóri SSH og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, undir samning um Ratsjánna á höfuðborgarsvæðin.

 Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni Íslenska ferðaklasans og er um að ræða ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt stuðningi frá Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins.

Verkefnið er hluti af framfylgd sóknaráætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið.

Umsóknarfrestur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu til að taka þátt er til 29. mars nk. Nánari upplýsingar á https://www.icelandtourism.is/verkefni/ratsjain/

Nánari upplýsingar um sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins: https://www.ssh.is/soknaraaetlun