Rotþróarhreinsun 2025
13.02.2025
Deila frétt:
Hreinsitækni mun á næstu dögum hefja rotþróarhreinsun Kjósinni, á þessu ári verður svæði 3 hreinsað. Stefnt er að því að klára hreinsun rotþróa að mestu fyrir sumarið ef veður og færð leyfa . Sjá nánar á mynd hvar svæði 3 er.
Mjög mikilvægt að trjágróður hefti ekki för þessara stóru bíla, eins ef hlið eru læst eða rotþróin óaðgengileg geta eigendur átt von að að þurfa greiða fyrir aukaferð. Það er alfarið á ábyrgð eigenda fasteigna að rotþróin sé aðgengileg, töluverður kostnaður fylgir auka ferð.
- Hreinsun rotþróa fer fram á þriggja ára fresti og rukkast árlega með fasteignagjöldum.
- Sveitarfélaginu er skipt upp í þrjú svæði og er auglýst hvaða svæði eru tekin fyrir hverju sinni inná heimasíðu sveitarfélagsins. Árið 2025 verður svæði nr. 3 hreinsað. Sjá "Svæðaskipting hreinsunarsvæða".
- Beiðni um aukalosanir skulu berast til Hreinsitækni með tölvupósti postur@hreinsitaekni.is
- Þjónustuaðili tæmingar - Hreinsitækni
- Við bendu fasteignaeigendum á að fara inná Kortasjá á kjos.is og velja þar heimilisfang og haka við veitur til að sjá sögu hreinsunar á þeirra rotþró.
- Nánar má lesa um þjónustu við rotþrær undir Fráveita/rotþró