Fara í efni

Rotþróarhreinsun 2026

Deila frétt:

Hreinsitækni mun á næstu dögum hefja rotþróarhreinsun í Kjósinni og verður svæði 1 hreinsað á þessu ári. Stefnt er að því að klára hreinsun rotþróa að mestu fyrir sumarið, ef veður og færð leyfa . Sjá nánar á mynd hvar svæði 1 er.

Mjög mikilvægt er að trjágróður hefti ekki för þessara stóru bíla. Einnig þarf að huga að læstum hliðum því ef rotþróin er óaðgengileg geta eigendur átt von að að þurfa greiða fyrir aukaferð, sem er kostnaðarsamt. Það er alfarið á ábyrgð eigenda fasteigna að rotþróin sé aðgengileg.

  • Hreinsun rotþróa fer fram á þriggja ára fresti og rukkast árlega með fasteignagjöldum.
  • Sveitarfélaginu er skipt upp í þrjú svæði og er auglýst hvaða svæði eru tekin fyrir hverju sinni inná heimasíðu sveitarfélagsins.
  • Árið 2026 verður svæði nr. 1 hreinsað. Sjá "Svæðaskipting hreinsunarsvæða".
  • Beiðni um aukalosanir skulu berast til Hreinsitækni með tölvupósti postur@hreinsitaekni.is
  • Þjónustuaðili tæmingar - Hreinsitækni
  • Við bendum fasteignaeigendum á að fara inná Kortasjá á kjos.is, setja heimilisfang í leitargluggann efst til vinstri, haka við Veitur-Fráveita-Rotþrær til að sjá sögu hreinsunar á þeirra rotþró. Smellt er á fjólubláa blettinn sem sýnir rotþró og þá kemur upp saga hreinsunar.
  • Nánar má lesa um þjónustu við rotþrær undir Fráveita/rotþró