Fara í efni

Samningur um efniskaup fyrir hitaveituna undirritaður

Deila frétt:

 

Nýlega buðu Kjósarveitur út efni vegna lagningar hitaveitu í Kjósarhreppi.

Lægsta gilda tilboðið, bæði í stál- og pexrörin átti dansk/sænska fyrirtækið Logstor A/S.
Í dag voru forsvarsmenn Logstor mættir í Kjósina til að ganga frá samningum, þeir Jørgen Ægidius framkvæmdastjóri sölusviðs og Christian Jørgensen, svæðisstjóri.

 

Í för með þeim voru eigendur Ísrörs ehf, umboðsaðila Logstor á Íslandi, þeir Birgir Sigurjónsson og Örn Sigurðsson.
Einnig var hönnuður hitaveitunnar, Bragi Þór Haraldsson hjá Stoð ehf-verkfræðstofu, á fundinum. Frá Kjósarveitum voru mætt þau, Sigríður Klara Árnadóttir, Pétur Guðjónsson, Guðmundur Davíðsson og Karl Magnús Kristjánsson.

 

Stefnt er að fyrstu skóflustungunni á sumardaginn fyrsta, 21. apríl nk og um það leiti er fyrsta sendingin af rörum að koma til landsins.

 

 

Frá vinstri: Sigríður Klara, Jørgen Ægidius,

Christian Jørgensen, Örn Sigurðsson,

Bragi Þór Haraldsson, Birgir Sigurjónsson,

Guðmundur Davíðsson og Pétur Guðjónsson