Fara í efni

Skipulagsauglýsing

Deila frétt:

Samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru kynntar eftirfarandi breytingar á
deiliskipulögum:
1. Deiliskipulag Miðbúð 1 til 7 íbúðar og frístundabyggð
Breytingin tekur til lóðanna Miðbúð 1 - 7 og felur í sér viðbót við byggingarskilmála í greinargerð
deiliskipulagsins, nánar tiltekið nýjan kafla 4.6 um íbúðarhús. Skipulagsuppdráttur helst óbreyttur.
2. Deiliskipulag Brekkur 1 og 2
Breytingin tekur til lóðanna Brekkur 1 og Brekkur 2. Í breytingunni felst að byggingarheimildir á
lóðunum eru auknar þannig að heimilt byggingarmagn verði allt að 250 m² á hvorri lóð. Aðrar lóðir
innan skipulagssvæðisins halda óbreyttu byggingarmagni og aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast
óbreyttir.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði, á
skrifstofutíma sveitarfélagsins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.kjos.is og á
skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Málin eru í auglýsingu frá 8. Júní 2026 með athugasemdarfresti til og með 6. júlí 2026.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps