Skipulagsauglýsing, breyting á deiliskipulagi athafnasvæðis í landi Möðruvalla
Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis í landi Möðruvalla
Í gildandi deiliskipulagi eru þegar skilgreindar tvær borholur fyrir heitt vatn innan reits I2, annars vegar borhola MV-19 innan byggingarreits A2 og hins vegar borhola MV-24 innan byggingarreits A3. Við borholu MV-19 hefur verið reist borholuhús með nauðsynlegri tækniaðstöðu. Með þessari deiliskipulagsbreytingu bætist við nýr byggingarreitur, A4, við borholu MV-25, þar sem gert er ráð fyrir borholuhúsi og nauðsynlegrar tengdrar aðstöðu. Jafnframt er farið fram á stækkun byggingarreits A2 til að koma fyrir nýju húsnæði fyrir vélbúnað tengdan móttöku á heitu vatni frá borholum veitunnar. Í húsinu verður jafnframt geymsluaðstaða fyrir veitu sveitarfélagsins. Tilefni stækkunar er aukið umfang starfseminnar og aukið álag á núverandi móttökuaðstöðu, sem uppfyllir ekki lengur þarfir rekstursins.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði, frá og með 9. mars 2026 til 20. apríl 2026 og er einnig til sýnis á heimasíðu Kjósarhrepps, www.kjos.is sem og í skipulagsgátt undir málsnúmeri 268/2026. Sjá hér.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 20. apríl 2024.
Skila skal athugasemdum í skipulagsgátt undir viðkomandi málsnúmeri.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps