Skýringar lagðar fram um tilvist höfuðskálarinnar
24.03.2008
Deila frétt:
Línur eru farnar að skýrast á hauskúpufundnum. Samkvæmt frásögn mannsins sem leitað var að í dag, sem er tengdasonur vinkonu eiganda hjólhýsisins, þá hafi hann áskotnast höfuðskelina. Gefur hann þær skýringar að uppruni hennar sé frá afa hans, sem hafi verið læknir í lifandi lífi og haft hana undir höndum sökum þess. Lögreglan hefur málið til rannsóknar, sem mun leiða í ljós aldur hennar og sannleiksgildi skýringa mannsins sem kom með höfuðskálina í hjólhýsið.