Sorphirðu frestað til morguns, laugardags 29.ágúst
28.08.2015
Deila frétt:

Gámaþjónustan verður verður því miður að fresta tæmingu á grænum og bláum ruslatunnum í dag, vegna bilunar í bíl.
Auk þess er ansi hvasst í Kjósinni í dag og því hætta á að pappír fari að fjúka þegar átt er við tunnurnar.
Tunnurnar verða tæmdar á morgun, laugardag 29. ágúst.
Með þökk fyrir skilninginn.
Kær kveðja
Gámaþjónustuan og Kjósarhreppur