Fara í efni

Spíttbát Skúla Mogensen rænt

Deila frétt:

Spíttbát Skúla Mogensen, forstjóra Wow air, var stolið úr læstri skemmu í Hvammsvík í Hvalfirði um síðustu helgi. Báturinn var á bátakerru þegar honum var stolið. Spíttbáturinn er af gerðinni Champion Allante S565  og er um 6 metra langur. Spíttbáturinn er með alvöru vél, Volvo Penta árgerð 2005.

Skúli Mogensen býður 500.000 krónur í fundarlaun fyrir þann sem finnur spíttbát hans sem stolið var úr Hvammsvík

 „Ég vona svo sannarlega að báturinn finnist og að þessir þrjótar fari bak við lás og slá,“ segir Skúli Mogensen í samtali við Smartland.