Störf hjá Kjósarhrepp í sumar.
Vinna fyrir námsmenn
Vinnumálastofnun hefur úthlutað til Kjósarhrepps þremur störfum fyrir námsmenn 18 ára og eldri nú í sumar í tvo mánuði. Vinnan hefst 3. júní og lýkur 31. júlí Það er skilyrði að viðkomandi námsmaður hafi verið í námi sl vetur og sé skráður í nám hjá viðurkenndri menntastofnun næsta haust. Vinnutími verður frá kl. 09-16, mánudaga-föstudaga. Ath. aðeins er um þrjú störf að ræða.
Unglingavinnan
Unglingavinnan fyrir aldurshópinn 14-16 ára verður starfrækt í sumar með hefðbundnum hætti. Hún mun hefjast 18.júní og vera til 18. júlí báðir dagar meðtaldir. Mánudaga-fimmtudaga frá kl 10-16. Möguleiki á aukavinnu í kringum Kátt í Kjós.
Helstu verkefnin verða: sláttur, hirðing og hreinsun í kringum Ásgarð og Félagsgarð. Rusl tínt meðfram vegum, strandlengjum og fl.
Umsóknareyðublöð má sækja hér fyrir námsmenn og hér fyrir unglingavinnuna.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skila inn umsókn á skrifstofu Kjósarhrepps fyrir 20. maí 2013 eða senda í tölvupósti á oddviti@kjos.is