Sveitarstjórn Kjósarhrepps auglýsir eftir rekstraraðila félagsgarðs í Kjós
Félagsgarður í Kjós er um 380 fm. sjarmerandi samkomuhús, byggt árið 1946. Á neðri hæð hússins er móttaka, fatahengi, bar, salerni og hreinlætisaðstaða ásamt geymslu. Á annarri hæð hússins er samkomusalur, eldhús og geymslur. Leyfi er fyrir 180 manns. Undanfarin ár hefur húsið verið vinsæll staður til að halda brúðkaup, afmæli og fleiri viðburði.
Félagsgarður er ákjósanlegur fyrir hvers kyns viðburði, s.s. veisluhöld, fundi, námskeið, ráðstefnuhald, ættarmót, norðurljósamiðstöð og aðra mannfagnaði. Veitingarekstur er mögulegur.
Húsið er einstakt samkomuhús í fögru umhverfi í alfaraleið um Hvalfjörðinn og stendur við Hvalfjarðarveg, skammt frá Laxá í Kjós.
Í húsinu er fullbúið eldhús, borðbúnaður, stólar og borð í sal fyrir 180 manns.
Kjósarhreppur óskar eftir áhugasömum rekstraraðila til að taka húsið á leigu, frábært tækifæri fyrir kraftmikinn, heiðarlegan og hugmyndaríkan einstakling.
Húsið er laust á haustmánuðum eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri í síma 566-7100 eða á netfanginu sveitarstjori@kjos.is
Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2026. Umsóknum skal skilað á sveitarstjori@kjos.is í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda og fyrri reynsla af sambærilegum rekstri og/eða hvaða hugmyndir viðkomandi hefur um nýtingu hússins .