Tæming rotþróa í annari eða í þriðju viku af júlí
Reiknað er með að tæming rotþróa hjá þeim sem ekki hefur verið tæmt hjá sl þrjú ár verði í annari eða þriðju viku af júlí.
Vorið 2010 voru tæmdar þrærnar í Eilífsdalnum og á Hálsendanum sem fundust og voru aðgengilegar. Haustið 2010 var farið í Norðurnesið og Eyjafellið og tekið úr þeim þróm sem fundust. Vorið 2011 var farið í hverfin í kringum og vestan við Meðalfellsvatn og tekið úr þeim sem fundust.
Kjósarhreppur hefur staðið fyrir hreinsun úr rotþróm frá árinu 2007 og enn standa hreinsunarmenn frammi fyrir því að fasteignaeigendur hafa ekki merkt þrærnar eða sjái til að það sé gott aðgengi að þeim.
Ungmennavinna Kjósarhrepps hafði það verkefni í sumar að hritasetja allar rotþrær í sveitarfélaginu en ekki tókst finna þær við öll hús.
Nokkrir hafa haft samband við skrifstofu hreppsins um að ekki hafi verið tæmt hjá þeim undanfarin þrjú ár og eru þeir sem eru sömu skoðunar að hafa samband í s. 5667100