Það verður alvöru sveitamarkaður í Félagsgarði á laugardaginn
15.07.2010
Deila frétt:
Í Félagsgarði, félagsheimili Ungmennafélagsins Drengs, er sveitarmarkaður og kynning á ýmsum framleiðsluvörum. Meðal þess sem verður á boðstólum er prjónavara, handverk og listmunir, má þar til dæmis nefna: allar almennar prjónavörur, handverk úr plexigleri, leðri, hrauni, leir, þæfðri ull, gleri, tré og grjóti.
Matarbúrið á Hálsi, Sogn, Bangsi á Heiðarbæ og það nýjasta Kú.is verða með vörur sína á boðstólum og til kynningar.
Kvenfélag Kjósarhrepps verður með veitingasölu.
Á útisvæðinu verða hestar, heimalingur, geitur og hvolpar.
Hestamannafélagið Adam mun sjá um að teyma undir börnum frá kl 14-16 á vægu verði
Opið verður frá kl. 12-17