Það verður trall og fjör í Eyrarkoti á Kátt í Kjós
13.07.2010
Deila frétt:
![]() |
| Allir fara á Heyvagni í fjöruferð |
Á Kátt í Kjós verður mikið trall og fjör í Eyrarkoti, enda boðið uppá ferðir á heyvagni niður í fjöru fyrir börn og fullorðna. Ragnhildur Jónsdóttir verður með álfaspilin sín og kynnnir rúnabók, Jóhönnu Harðardóttur, Galdratákn guðanna. Sigurbjörn Hjaltason á Kiðafelli verður með handverkin sín til sölu og Kristín Guðmundsdóttir sýnir verkin sín og eru þau einnig til sölu.
Milli kl 16 og 17 spila strákarnir úr hljómsveitinni Múgsefjun.
Rjúkandi kaffi og kökur til sölu á staðnum
Opið frá kl 13-17. Nánari upplýsingar veittar í s: 6923025, begga@emax.is
