Þjóðaratkvæðagreiðsla laugardaginn 9. apríl 2011
28.03.2011
Deila frétt:
Kjörskrárstofn vegna þjóðaratkvæðagreiðslunar sem fara á fram laugardaginn 9. apríl 2011, mun liggja frammi á skrifstofu Kjósarhrepps í Ásgarði, mánudaga til fimmtudaga frá kl 10:00 - 16:00 fram að kosningu. Á kjörskrá eru nú 171. 77 konur og 94 karlar.
Kjörstaður er Ásgarður og verður kjörfundur haldinn frá kl 12:00- 20:00.
Aðsetur kjörstjórnar verður á sama stað
Kjörstjórn skipa nú:
Ólafur Helgi Ólafsson formaður, í stað Gunnars Kristjánssonar sem er staddur erlendis, Unnur Sigfúsdóttir og Birna Einarsdóttir.