Fara í efni

Tillaga að starfsleyfi Veiðifélags Kjósahrepps Brynjudal

Deila frétt:

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi vegna landeldis Veiðifélags Kjósahrepps í Brynjudal. Um er að ræða landeldi á allt að 10.000 seiðum.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn með þeirri hreinsun sem rekstaraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202201-027, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 6. desember 2022.
Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Sjá nánar: https://ust.is/umhverfisstofnun/frettir/stok-frett/2022/11/07/Tillaga-ad-starfsleyfi-Veidifelags-Kjosahrepps-Brynjudal/