Fara í efni

Tónleikar - Fjórar Stjörnur - Akranes - 7. nóvember

Deila frétt:

Laugardaginn 7. nóvember verður Svala Björgvins ásamt hljómsveit með tónleika í Bíóhöllinni Akranesi til heiðurs Gunnars Þórðarsonar, Magnúsar Eiríkssonar, Björgvins Halldórssonar og Megas.

Aðaltónleikarnir eru kl. 21:00 og er lítið af miðum eftir.  Aukatónleikar verða kl 18:00 og munu 150 eldriborgarar af Akranesi, Hvalfjarðarsveit og Borgarnesi mæta.  Enn eru um 50 lausir miðar eftir á þá tónleika og býðst eldri borgurum í Kjós (Og/eða meðlimum Kvenfélagsins í Kjós) tilboð á þá tónleika, miðann á 3.990 kr í stað 6.990 kr.

Miðasala við hurð. 

Frekari fyrirspurnir:  heidmareyjolfs@gmail.com