Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
Hópur áhugafólks hefur stofnað Umhverfisvaktina við Hvalfjörð en markmið félagsins er að vernda lífríkið við Hvalfjörð jafnt i sjó, lofti og á landi, vinna að faglegri upplýsingaöflun með aðstoð sérfræðinga, efla fræðslu um umhverfismál og tryggja gegnsæi upplýsinga frá opinberum aðilum og fyrirtækum á svæðinu. Auk þess mun Umhverfisvaktin benda á leiðir til útbóta í umhverfisverndarmálum og tryggja að hagsmunum íbúa og komandi kynslóða sé gætt í ákvarðanatöku um allt sem varðar umhverfið.
Félagið er þverpólitískt og mikill einhugur ríkti á stofnfundi félagsins sem haldinn var að Hótel Glym við Hvalfjörð. Ragnheiður Þorgrímsdóttir, stjórnsýslufræðingur og kennari á Kúludalsá var kjörinn formaður þess, aðrir í stjórn eru: Daniela Gross Eystri-Leirárgörðum, Hvalfjarðarsveit, Gyða Björnsdóttir Borgarhóli, Kjós, Jóhanna Harðardóttir, Hlésey Hvalfjarðarsveit og Þórarinn Jónasson Hálsi, Kjós og varastjórn skipa: Baldvin Björnsson Skorholti, Hvalfjarðarsveit, Marteinn Njálsson Vestri-Leirárgörðum, Hvalfjarðarsveit og Sigrún Sigurgeirsdóttir Hnúki, Hvalfjarðarsveit.
Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á umhverfis- og dýravernd og vilja stuðla að góðri umgengni um Hvalfjörð og í nágrenni hans, og rækta virðingu fyrir lífríkinu.
Stofnfélagaskrá Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð verður haldið opið fram að áramótum og allt áhugafólk um umhverfi Hvalfjarðar er hvatt til að leggja lóð á vogarskál betri framtíðar með þátttöku en umsóknir má senda á netfang formannsins: namshestar@namshestar.is