Fara í efni

Ungmennafélagið Drengur 95 ára

Deila frétt:

Ungmennafélagið Drengur í Kjós var stofnað 1. eða 15. ágúst 1915. Í fyrstu bókum um félagið stendur að félagið hafi verið stofnað 1.ágúst en samkvæmt heimildum og  einnig kemur það fram á formannamyndunum í Félagsgarði , þá er það 15. ágúst.

Stofnendur UMF Drengs voru 31 og þar meðal voru 2 konur og var það Þorleifur Guðmundsson sem var aðalhvatamaður að stofnun þess.

 

Fyrsti formaður félagsins var Þorgils Guðmundsson frá Valdastöðum og með honum í stjórn voru þeir Ellert Eggertson frá Meðalfelli og Halldór Jónsson frá Káranesi

Aðalmarkmið með stofnun félagsins var að efla íþróttaáhuga Kjósverja og átti félagið mörgum góðum íþróttamönnum á að skipa bæði í glímu og frjálsum íþróttum. Mót voru haldin á milli Aftureldingar og Drengs og var fyrsta mótið haldið á Kollafjarðaeyrum árið 1918.

Þeir voru kröftugir félagsmenn í Dreng á árum áður og byggðu sér félagsheimili 1945 og var það nefnt Félagsgarður, var það fyrsta ungmennafélag á landinu sem byggði sér sitt eigið félagsheimili.

 

UMF Drengur gaf einnig ú blað, 1916 og hét það fyrst Draupnir og breyttist síðan í Hreiðar heimska haustið 1917, en Hreiðar heimski var einn af hinum nafnkenndu, fornu íslendingum og var honum lýst þannig" Mikill vexti, en ljótur á yfirlit og þótti varla sjálfrátt fyrir vitsmunasakir. Hann var styrkur að afli, manna fóthvatastur og hógvær í skapi" Upphafsmenn blaðsins lýstu því við íslenskan sveitaungling og mátti það bera nafn íslensks bóndasonar, þess er ekki þótti með öllu mannvænlegur í uppvexti, en varð þó ekki alls varnað.

Blaðið kom að jafnaði út 6-7 sinnum á ári, í tugi ára og var markmið þess meðal annars að fræða og hvetja

Í dag má segja að frekar lítið líf sé í "Drengnum" en vonandi vaknar hann úr dvalanum á síðustu árum fyrir aldarafmæli sitt