Úrklippur úr Kjósarmyndinni fundnar
03.03.2008
Deila frétt:
Fundnar eru afklippur og myndskeið frá þeim tíma þegar Kjósarmyndin var í vinnslu um 1950. Það sem þegar hefur verið skoðað af því efni er m.a. myndskeið úr Fossárétt og samfelld upptaka úr Reynivallakirkju þar sem fór fram ferming og skírn. Unnið er að því að grófskeyta myndbrotin og setja efnið á geisladisk. Áætlaður sýningartími efnisins er um 10 mínútur.