Fara í efni

Útgáfa bókar í undirbúningi

Deila frétt:

Smelið til að stækka
Á síðasta fundi hreppsnefndar Kjósarhrepps voru þrír menn tilnefndir í ritnefnd til undirbúnings útgáfu ritverks um Kjósina. Bókin Kjósarmenn sem gefin var út um 1960 hefur verið mjög eftirsótt um áraraðir. Nefndin mun í upphafi meta hver efnistök í nýrri bók mun verða.

Komin er í leitirnar kassi með gögnum frá útgáfu Kjósarmanna. Í honum var m.a. þessi skemmtilega mynd frá Reynivöllum. Ekki er getið hvaða ár myndin er tekin.Gaman væri af, ef einhver sendi inn upplýsingar um líklegt ártal og lýsingu á hvað ber fyrir sjónir.