Fara í efni

Vel sóttur handverksdagur

Deila frétt:
Margir lögðu leið sína í Ásgarð á sunnudag til að forvitnast um hvernig á að tálga í tré, sauma leður, vinna með ull og silki, fræðast um bútasaum eða sjá hvernig er unnið í horn og bein. Kjósarstofa var með búðina opna ásamt ljósmyndasýningu. Þetta var vel heppnaður dagur að öllu leyti. Atvinnu og ferðamálanefnd vill þakka öllum sem lögðu leið sína í Ásgarð ásamt þeim sem komu og voru með handverk og deildu tíma og fróðleik til okkar hinna. Kjósarhreppi ásamt Kvenfélagi Kjósarhrepps sem á borð báru veislukrásir í boði hreppsins er einnig þakkað. Þessi ánægjulegi dagur var í senn fræðandi og skemmtilegur og verður án efa upphaf að einhverju nýju og spennandi í samvinnu og handverki.