 |
| Pappinn troðinn |
Eftir að gámarampur var tekin í notkun hefur flokkun á endurvinnsluplan við Hurðarbaksholt gengið framar vonum. Notendur sýna aukna ábyrgð við flokkun endurvinnsluefna. Starfsmenn hreppsins hafa vakandi augu með flokkun og umgengni og grípa inní þegar þörf krefur. Algengast er að notendur setji í ógáti plastefni í grófan úrgang, sem ber há urðunargjöld. Plastefni eiga að fara í sérstaka merkta gáma, og skapa þá sveitarfélaginu tekjur í stað mikils kostnaðar. Sama gildir um bylgjupappa.