Vinsamlegast gerið upp fyrir áramót
29.12.2008
Deila frétt:
Nú líður að því að árið 2008 verður afmælt. Rík hefð er fyrir því, hjá okkar þjóð að gera upp það sem útaf stendur fyrir hver áramót. Skrifstofa Kjósarhrepps mun á næstu dögum taka fagnandi öllum þeim sem vilja gera upp sín mál gagnvart sveitarsjóði Kjósarhrepps fyrir áramót. Af hálfu Kjósarhrepps hefur verið farið mjög mildilega í það verk að innheimta útistandandi gjöld. Við væntum því þess að þátttakendur í rekstri sveitarfélagsins sýni samkennd og geri upp sín gjöld áður en árið verður úti.
Þeir sem enn eru í vanskilum mega vænta símtals frá oddvita á næstu dögum verði gjöld ekki gerð upp hið fyrsta.
Sigurbjörn Hjaltason