Vodagar í Kjós 2026, dagskrá
Nú er vor í lofti, fuglasöngur og flugnasuð. Eins og undanfarin ár stendur sveitarstjórn Kjósarhrepps fyrir umhverfisátakinu Vordagar í Kjós. Markmiðið með þessum dögum er að hreinsa Kjósina okkar af því rusli sem safnast yfir veturinn í náttúrunni. Verkefnið er fyrst og fremst hugsað sem hvatning til góðra verka með dassi af samveru. Vordagar standa yfir dagana 23. til 26. apríl 2026. Íbúar, sumarhúsafélög og félagasamtök eru hvött til að taka þátt, hreinsa rusl í sínu nánasta umhverfi og mögulega skipuleggja dagskrá sem fellur að markmiði verkefnisins. Vordögum í Kjós lýkur svo með Stóra plokkdeginum. Stór gámur verður fyrir utan Gámaplanið þessa daga, þar sem duglegir plokkarar geta losað sig við það rusl sem safnast. Gaman ef við fáum myndir inn á íbúasíðuna af duglegum plokkurum með hvatningu til annarra.
Dagskrá
23. apríl (sumardagurinn fyrsti) 11:00 til 12:00 eldvarnarnámskeið í Ásgarði á vegum slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
24. apríl Tónleikar að Hjalla með Mugison.
25. apríl kl. 11:00 til 12:00 Hjalti Andrés leiðbeinir áhugasömum um trjáklippingar, mæting í Ásgarði.
26. apríl er Stóri plokkdagurinn.
Gleðilegt sumar, sveitarstjórn Kjósarhrepps.