Vorboðinn ljúfi
Lömb eru fædd á nokkrum bæjum í Kjós, en venjulega er það merki þess að vorið sé á næsta leiti. Sennilega stenst það ekki alveg, miðað við fyrri ár.
Flestir bændur í Kjós taka þátt í gæðastýringu sauðfjár og þá ætti að geta þess í lambaskýrslunum hver sé faðirinn að lambinu. Ef menn eru ekki alveg vissir mega þeir byggja það á líkum, sem metnar eru eftir útliti, það er að segja fríðleika, holdafari og lit. Núna eru bændur í óða önn að reyna að rýna í útlit lambanna og geta sér til um faðernið, en margir hrútar sérstaklega ungir og sprækir, heimtust eftir hinn lögboðna hrútadag, sem er 1. nóvember, en þá eiga allir kynþroska hrútar að vera komnir í öruggt aðhald.
Hér fyrir ofan er mynd af henni Góu litlu sem fæddist í Hækingsdal þann 10. mars sl.