Vordagar í Kjós
10.03.2026
Deila frétt:
Eins og undanfarin ár mun sveitarstjórn Kjósarhrepps standa fyrir umhverfisátaki á vordögum. Vordagar í Kjós munu standa frá 23. til 26. apríl. Innan þessa tímabils er bæði sumardagurinn fyrsti og Stóri plokkdagurinn, því ærið tilefni til að láta hendur standa fram úr ermum og fegra umhverfið. Einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök eru hvött til að skipuleggja hreinsunarviðburði í sínu nærumhverfi og gera sér glaðan dag í leiðinni. Sorp sem safnast verður hægt að koma með á gámaplan að kostnaðarlausu. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.