Fjölskyldu- og menningarnefnd
Dagskrá
1.Kátt í Kjós 2026
2605035
Farið yfir framkvæmd Kátt í Kjós 2026
Farið yfir framkvæmd á Kátt í Kjós 2026 og rætt um hátíðina á næsta ári. Umræður um að stækka hátíðina og koma inn með nýja viðburði. Ákveðið að nota veturinn til að vinna verkefnið áfram.
2.Vetrarstarf 2026-2027
2609012
Undirbúningur og umræður um viðburði vetrarins.
Farið yfir verkefni vetrarins. Ákveðið að halda litlu jól fyrir leikskóla- og grunnskólabörn 23. nóvember, aðventumarkað í Félagsgaði 5. desember og þrettándabrennu miðvikudaginn 6. janúar. Einnig var farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar er snúa að nefndinni.
Fundi slitið - kl. 17:30.