Fara í efni

Markaðs, atvinnu- og menningarmálanefnd

573. fundur 28. nóvember 2016 kl. 13:59 - 13:59 Eldri-fundur

Markaðs, atvinnu- og ferðamálanefnd, fundur nr. 22

Dagsetning  28. nóvember,  kl.  16:00 í Ásgarði.

Mætt  voru:  Helga Hermannsdóttir formaður, Sigurbjörg Ólafsdóttir , Þórarinn Jónsson boðaði forföll   og Guðný G Ívarsdóttir sem ritaði fundargerð. 

Helga Hermannsdóttir formaður setti fundinn.

 

Mál sem tekin voru fyrir:

 

1.       Kjósarkortið.  Undirbúningur fyrir fund með Loftmyndum.

 

2.       Bókasafnið.   Grunnskólabörn voru sérstaklega boðin velkomin á bókasafnskvöldið 16. nóvember, horfa á mynd og fá popp og kók. Fimm börn mættu.

Ákveðið var að hafa upplestur úr nýjum bókum fyrir grunnskólabörnin 13. desember kl 20:00 í Ásgarði og upplestur fyrir eldri miðvikudagskvöldið 14. desember kl 20:00

 

3.       Aðventumarkaðurinn.  Sex aðilar hafa pantað  alls 10 borð. Búið er að setja auglýsingu í Skessuhorn og Mosfellspóstinn. Auglýst verður á samlesnum í RÚV.

 

 

 

 

4.       Næsti fundur verður  2. Janúar 2017.

 

 

Fundi slitið kl 17:15      GGÍ