Fara í efni

Notendaráð fatlaðs fólks

5. fundur 03. október 2019 kl. 15:00 - 16:00 2. hæð Helgafell
Nefndarmenn
  • Sigurður Guðmundur Tómasson aðalmaður
  • Sara Birgisdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Oddgeirsdóttir aðalmaður
  • Regína Hansen Guðbjörnsdóttir aðalmaður
  • Karl Alex Árnason aðalmaður
  • Sigurþór Ingi Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Fjölnisdóttir fjölskyldusvið.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Fjölnisdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði

Dagskrá:

Almenn erindi

3. 201909437 - Stefnumótun í málaflokki fatlaðs fólks

Fyrstu skref við undirbúning stefnumótunar í málaflokki fatlaðs fólks kynnt fyrir notendaráði.

Notendaráð Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps lýsir yfir eindregnum vilja til að hefja vinnu við undirbúning stefnumótunar í málaflokki fatlaðs fólks. Ráðið er jákvætt fyrir að haldinn verði opinn íbúafundur þar sem sjónarmið allra sem láta sig málefnið varða koma fram sem fyrsta skref í þeirri vinnu.

Almenn erindi - umsagnir og vísanir

1. 201909298 - Beiðni um umsögn notendaráðs fatlaðs fólks, umsókn Sinnum um starfsleyfi

Óskað er eftir umsagnar notendaráðs fatlaðs fólks um umsókn Sinnum ehf. um starfsleyfi

Notendaráð Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps er mjög jákvætt gagnvart því að Sinnum fái starfsleyfi vegna þjónustu og sér ekkert því til fyrirstöðu en að GEF veiti þeim starfsleyfi.

2. 201906237 - GEF-Starfsleyfi-beiðni um umsögn notendaráðs fatlaðs fólks

Svar kynnt frá félagsmálaráðuneytinu um að NPA miðstöðinni hafi verið veitt starfsleyfi vegna NPA umsýslu.

Fleira ekki gert.