Fara í efni

Samgöngu- og fjarskiptanefnd

211. fundur 11. mars 2008 kl. 15:08 - 15:08 Eldri-fundur

 

 

7. fundur í upplýsinga og fjarskiptanefnd.

 

 

Mætt voru Hlöðver Ólafsson, Jóhanna Hreinsdóttir og Þórarinn Jónsson.

Sigurbjörn Hjaltason  oddviti sat líka fundinn.

 

  1. Mál.  Sala Hive á eMax hluta fyrirtækisins. Sjá eftirfarandi bréf frá Hive.

 

 

 

Þær breytingar hafa orðið á reksti þráðlausa dreifikerfis Hive að kerfið í heild sinni hefur verið selt til fyrirtækisins eMax ehf. Nýjir eigendur þess og stór hluti starfsfólks eMax hafa unnið við rekstur þráðlausa dreifikerfisins frá árinu 2002 og hefur því mikla reynslu og þekkingu á því sviði.  Þessi breyting mun að öllu jöfnu ekki hafa áhrif á þjónustu við þá viðskiptavini sem eru með Hive tengingu í dag heldur flytjast viðskipti þeirra yfir til eMax sem mun þjónusta þá. Með þessari breytingu á reksti kerfisins er stefnt að því að bæta þjónustu við viðskiptavini og tryggja sem flestum íbúum landsbyggðarinnar aðgang að interneti. eMax ehf mun einnig yfirtaka réttindi og skyldur samkvæmt samstarfssamningi sem er í gildi við sveitarfélagið.

 

 Á næstu vikum verður unnið að tilflutningi þessa viðskipta yfir til nýs rekstraraðila. Stefnt er að því að viðskiptavinir verði sem minnst varir við þessar breytingar.

 

Áskriftargjöld vegna mars mánaðar verða innheimt að Hive en eftir það mun eMax taka yfir innheimtuna.

Starfsmenn eMax munu svara öllum fyrirspurnum varðandi þessar breytingar.

 

Nýtt þjónustunúmer eMax er 544-4454

Netfang eMax er emax@emax.is

 

 

Lýstu fundarmenn vissum áhyggjum af síendurtekinni sölu og vandræðum á þráðlausu netsambandi í Kjós. Vonast nefndin til að nýir eigendur eMax nái að halda kerfinu gangandi og vandræðalausu fyrir notendur.

 

  1. Mál.  Kjos.is . Nefndarmenn hafa fundið fyrir jákvæðni í garð síðunnar og þeirra upplýsinga sem þar er að finna. Var stungið upp á að það mættu vera fleiri viðtöl tengd atburðum.  Fannst nefndarmönnum  að  innlegg frá yngri aldurshóp kjósarinnar væri góð viðbót. Gerð var tillaga um að börnin í kjósinni myndu jafnvel senda inn  pistla um skólann og félagslíf eða hvað annað sem þeim dettur í hug, með reglulegu millibili á kjos.is.  Stungið var upp á að oddviti sendi kjósarbörnum á skólaaldri persónulegt bréf með hvatningu um að senda inn efni á síðuna.     

 

 

 

Fleira var ekki bókað og fundi var slitið.