Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd
Dagskrá
1.DSK Sandslundur 16,26 og Sandstangi
2509028
Tekin fyrir eftir auglýsingu á deiliskipulagi fyrir Sandslund 16. Deiliskipulagið nær yfir lóðirnar Sandstanga L237218, Sandslund 16 L215846 og að hluta Sandslund 26 L215944. Samtals 15 lóðir á bilinu 0,17 til 0,53 ha.
Tillagan var auglýst frá 12.12.2025 til 23.01.2026. Alls bárust 6 umsagnir/athugasemdir við deiliskipulagið á auglýsingatíma. Fyrir liggur samantekt skipulagsráðgjafa við umsögnum/athugasemdum.
Tillagan var auglýst frá 12.12.2025 til 23.01.2026. Alls bárust 6 umsagnir/athugasemdir við deiliskipulagið á auglýsingatíma. Fyrir liggur samantekt skipulagsráðgjafa við umsögnum/athugasemdum.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.
2.Sandslundur 17, L215924 - Umsókn um deiliskipulag
2406047
Tekin fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi fyrir Sandslund 17. Deiliskipulagsbreyting þessi nær yfir lóðirnar Sandstanga, Sandslund 17 og Sandslund 16 þar sem gert er ráð fyrir breytingar á nöfnum lóða, aðkoma frá Flekkudalsvegi færist um 20 m til vestur og við bætist ein lóð á horni Flekkudalsvegs. Að öðru leyti gilda áfram skilmálar samþykkts deiliskipulags.
Tillagan var auglýst frá 12.12.2025 til 09.01.2026. Alls bárust 7 umsagnir/athugasemdir við deiliskipulagið á auglýsingatíma. Fyrir liggur samantekt skipulagsráðgjafa við umsögnum/athugasemdum.
Tillagan var auglýst frá 12.12.2025 til 09.01.2026. Alls bárust 7 umsagnir/athugasemdir við deiliskipulagið á auglýsingatíma. Fyrir liggur samantekt skipulagsráðgjafa við umsögnum/athugasemdum.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.
3.Hvammsvík Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa Böð, pottar og gufa
2601009
Tekin fyrir fyrirspurn frá Andrúmi/dkpitt þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins um bætta aðstöðu við böðin í Hvammsvík. Óskað er eftir að bæta við þurrgufu innan byggingarreits við núverandi blautgufu. Stærð þurrgufu og forrýmis yrði um 25 m2. Jafnframt er óskað eftir að bæta við heitum potti í fjöruborði örlítið norðar en núverandi pottar. Viðbótar pottur fellur utan byggingarreits A sem er skilgreint laugasvæði.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að tillagan kalli ekki á breytingu á deiliskipulagi og fái málsmeðferð í samræmi við 3 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi þar sem fyrirhuguð áform séu þess eðlis að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
4.Möðruvelli hitaveita DSK L223473
2511002
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæði í landi Möðruvalla. Breytingin fjallar um að skilgreina nýjan byggingarreit A4 fyrir borholuhúss við borholu MV-25 þar sem áformað er að reisa borholuhús, ætlað til að hýsa búnað tengdan vatnstöku, eftirliti og viðhaldi borholunnar.
Einnig stækkun byggingareits A2 og skilgreining á hámarks byggðu svæði innan reitsins þar sem heimilt byggingarmagn verður allt að 1.000 m2.
Einnig stækkun byggingareits A2 og skilgreining á hámarks byggðu svæði innan reitsins þar sem heimilt byggingarmagn verður allt að 1.000 m2.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.
5.Umsókn um sameiningu lóða Eyjavík 6 L198314 og 16 L125988
2601008
Lögð er fyrir fyrirspurn eigenda Eyjavík 6 L198314 og Eyjavík 16 L125988 um sameiningu lóðanna og áform um umsókn um breytta notkun í íbúðarhúsalóð að lokinni sameingingu.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur ekkert því til fyrirstöðu að sameina lóðirnar en breyting á skráningu lóðar samræmist ekki núgildandi Aðalskipulagi.
6.Brekkur 3 L204483 - Umsókn um breytingu á skráningu lóðar
2601028
Lögð er fyrir fyrirspurn um breytta notkun lóðarinnar Brekkur 3 L204483 úr frístundalóð í íbúðarhúsalóð. Svæðið er skipulagt frístundasvæði samkvæmt núgildandi Aðalskipulagi Kjósarhrepps. Skráð stærð lóðar er 6145m2, 80,9m2 sumarbústaður er á lóðinn.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar málinu.
7.Brekkur 5 L204485 - Umsókn um breytingu á skráningu lóðar
2601025
Tekin er fyrir umsókn um breytta skráningu lóðanna Brekkur 5 L204485 og Brekkur 6 L204486 úr frístundalóð í íbúðarhúsalóð. Umsókn samaefnis var áður tekin fyrir Skipulags- og byggingarnefnd á 138. fundir 27. ágúst 2020 þar sem jákvætt var tekið í erindið og skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda. Afgreiðsla Sveitarstjórnar á 219. fundi 2. september 2020 var á sama máta.
Stærð lóða samkvæmt fasteignaskrá: Brekkur 5, 6774m2 og Brekkur 6, 6774m2. 72,8m2 sumarbústaður er á lóðinni Brekkur 5 L204485. Ekkert hús er á lóðinni Brekkur 6.
Stærð lóða samkvæmt fasteignaskrá: Brekkur 5, 6774m2 og Brekkur 6, 6774m2. 72,8m2 sumarbústaður er á lóðinni Brekkur 5 L204485. Ekkert hús er á lóðinni Brekkur 6.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar málinu.
8.Meðalfell Stofnun lóða - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
2601024
Lögð er fyrir fyrirspurn eigenda Meðalfells í Kjós um að stofna tvær frístundalóðir. Frístundasvæðið er merkt F10d á aðalskipulagi 2017-2029. Lóðirnar eru merktar A og B og eru rúmlega 5000 fermetrar hvor. Vegur að lóðunum er teiknaður með rauðum lit. Landið er í flokki 2. gott ræktunarland.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að skoða þurfi fyrirkomulag lóða með tilliti til heildar skipulags svæðissins og ofanflóðamats fyrir svæðið.
9.Breytt staðsetninga áningarstaðar ofan þinghóls
2601030
Lögð er fyrir tillaga eigenda Eyrarkots um breytta vegtengingu og áningarstað við Hestaþingsháls samkvæmt deiliskipulagi og að nýr áningarstaður verið skipulagður í samvinnu við Vegagerðina og kostnararskiptingu milli aðila skoðuð að ósk eigenda.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd telur að æskilegt sé að halda í áningarstað á þessu svæði og leggur til við sveitarstjórn að vinna málið áfram með landeigenda og Vegagerðinni.
10.Meðalfellsvegur 7, L126495 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2601034
Lögð er fyrir umsókn Lilju Karen Steinþórsdóttir dags. 26.01.26 um fyrirhuguð byggingaráform á lóðinni Meðalfellsvegur 7 L126495. Tveir matshlutar eru á lóðinni. Við mhl 01 er áformað stakstætt sólhýsi/glerhús, byggingarefni er stál og gler með tengigangi við hús. Við mhl 02 er áformuð viðbygging / geymsla úr sama byggingarefni og fyrir er.
Stærð lóðar er 1541,1 m2 heilda byggingarmagn lóðar eftir stækkun yrði 123,7m2 og yrði nýtingarhlutfall 0,08. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Stærð lóðar er 1541,1 m2 heilda byggingarmagn lóðar eftir stækkun yrði 123,7m2 og yrði nýtingarhlutfall 0,08. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Meðalfells L126165.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Meðalfells L126165.
11.Stangarholt, L204969 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2601002
Lögð er fyrir umsókn Þórhalls Andréssonar að Stangarholti L204969 um byggignarleyfi á 28m2 þegar byggðri viðbyggingu við bílskúr. Brúttóflötur eftir stækkun 84,3m2. Um er að ræða 26.376,4m2 íbúðarhúsalóð. Heildar byggingarmagn eftir stækkun 263,5m2.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr.44.gr Skipulagslaga 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd vekur athygli á að byggingarfulltrúa er heimilt að leggja á stjórnvaldssekt á framkvæmdir sem eru byggingarleyfisskyldar án þess að hafa fengið byggingarleyfi skv. 9. gr. laga um mannvirki 160/2010.

12.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12
2601035
Fundi slitið - kl. 17:00.