Fara í efni

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd

30. fundur 26. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Elís Guðmundsson formaður
  • Petra Marteinsdóttir nefndarmaður
  • Davíð Örn Guðmundsson nefndarmaður
  • Guðmundur H Davíðsson nefndarmaður
  • Magnús Ingi Kristmannsson nefndarmaður
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
  • Óskar Örn Gunnarsson
  • Olgeir Olgeirsson
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri Skipulags- og Byggingarsviðs
Dagskrá

1.Möðruvelli hitaveita DSK L223473

2511002

Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæði í landi Möðruvalla. Breytingin fjallar um að heimila uppsetningu borholuhúss við borholu MV-25. Skilgreindur verður nýr byggingareitur A4 við borholu MV-25 þar sem heimilt verður að reisa borholuhús, ætlað til að hýsa búnað tengdan vatnstöku, eftirliti og viðhaldi borholunnar. Einnig stækkun byggingareits A2 og skilgreining á hámarks byggðu svæði innan reitsins þar sem heimilt verður að byggja allt að 1.000 m2.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Hálsendi 9, L126098 - Umsókn um uppskiptingu lóðar

2602007

Lögð er fram merkjalýsing vegna skiptingar lóðarinnar Hálsenda 9 (L126098) í tvær lóðir, sbr. uppdrátt dags. 26.01.2026. Umrædd lóð er innan gildandi deiliskipulags fyrir Háls í Kjós. Breytingin felur í sér að landareigninni er skipt í tvennt og verður eftir breytingu Hálsendi 9 4936,5 m2 og ný lóð Hálsendi 9b verður 4877,4 m2.
Að mati nefndarinnar felur fyrirhuguð lóðaskipting ekki í sér breytingu á skipulagslegum forsendum gildandi deiliskipulags. Byggingarreitir haldast óbreyttir og heimilað byggingarmagn og nýting svæðisins breytast ekki. Þá hefur skiptingin ekki áhrif á aðkomu, gatnakerfi eða veitur og breytir hvorki þéttleika byggðar né ásýnd svæðisins. Um er að ræða eignarlega afmörkun innan óbreyttra skipulagsheimilda og hefur breytingin ekki áhrif á hagsmuni aðliggjandi lóða.
Með hliðsjón af framangreindu telur skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd að fyrirhuguð skipting lóðarinnar feli ekki í sér breytingu á gildandi deiliskipulagi. Á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er því fallið frá gerð deiliskipulagsbreytingar og merkjalýsing samþykkt.

3.Valdastaðir, L126475, Dísukot - Umsókn um byggingarheimild eða- leyfi

2406058

Lögð er fyrir umsókn Marinós Marinóssonar um breytta skráningu á núverandi íbúðarhúsi mhl 03 á jörðinni Valdastaðir L126475 í gestahús.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.

4.Valdastaðir, L126475, Hús - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3

2504027

Tekin er fyrir byggingarleyfis umsókn Marinós Marinóssonar á íbúðarhúsi í umfangsflokki 3 skv. gr 9.1.3, BR 112/2012 á jörðinni Valdastaðir L126475. Fyrri umsókn kom fyrir nefnd 28.05.25 þar sem málinu var frestað og verkefnastjóra var falið að óska frekari gagna. Um er að ræða íbúðarhús á tveimur hæðum og hálf niður gröfnum kjallara: íbúð 0001- 403,9m2, íbúð 0101- 376,5 m2 og bílskúr 0102- 77,8 m2. Brúttóflötur samkvæmt skráningatöflu frá 22.04.25 samtals 837,7 m2. Stærð jarðar 54,9 Ha. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að málinu verði frestað og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.

Fundi slitið - kl. 17:00.