Fara í efni

Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd

31. fundur 26. mars 2026 kl. 16:00 - 17:00 stóra fundarsal í Ásgarði
Nefndarmenn
  • Elís Guðmundsson formaður
  • Petra Marteinsdóttir nefndarmaður
  • Davíð Örn Guðmundsson nefndarmaður
  • Guðmundur H Davíðsson nefndarmaður
  • Magnús Ingi Kristmannsson nefndarmaður
Starfsmenn
  • Þorbjörg Gísladóttir Sveitarstjóri
  • Óskar Örn Gunnarsson
  • Olgeir Olgeirsson
Fundargerð ritaði: Olgeir Olgeirsson Verkefnastjóri Skipulags- og Byggingarsviðs
Dagskrá

1.Eyri, byggð í sveit - Breyting á deiliskipulagi, L126030

2402030

Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Eyrar. Breytingin gengur út að gerð er textabreyting á skilmálum deiliskipulags þar sem lágmarksþakhalli er breyttur úr 15° í 10°.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingin fái málsmeðferð í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lagfæra þarf samþykktartextann á breytingartillögunni.

2.Eyjar 2, L125987, Eyjaflöt (Eyjatjörn) - Umsókn um DSK frístundabyggðar

2501021

Fyrir liggur endurskoðuð tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar Eyjaflatar (Eyjatjarnar) í landi Eyja 2 (L125987). Tillagan var áður tekin fyrir á fundi nefndarinnar þann 30. október 2025 þar sem hún var samþykkt með fyrirvara um að skýrt yrði kveðið á um að uppbygging á nýju svæði yrði háð því að ný vegtenging yrði lögð fyrir fram. Brugðist hefur verið þessu í uppfærðum gögnum, dagsett 20. mars 2026 og skilmálar skerptir til samræmis við bókun nefndarinnar.
Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd vísar til fyrri afgreiðslu sinnar frá 30. október 2025 þar sem tillaga að deiliskipulagi Eyjatjarnar í landi Eyja 2 (L125987) var samþykkt með fyrirvara. Nefndin hefur nú farið yfir uppfærð gögn dagsett 20. mars 2026. Staðfest er að brugðist hefur verið við athugasemdum nefndarinnar og texta bætt inn í skipulagsskilmála (kafli 3) sem kveður skýrt á um að uppbygging á nýju svæði sé háð því að ný vegtenging hafi verið lögð. Með vísan til þess að fyrirvarinn hefur verið uppfylltur, leggur nefndin til við sveitarstjórn að tillagan verði endanlega samþykkt og send Skipulagsstofnun til afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Nýtt deiliskipulag fyrir Álfakot L224886 - Álfagarður

2603020

Fyrir liggur tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í landi Álfakots. Tillagan nær til 8,7 ha svæðis og gerir ráð fyrir sex nýjum íbúðarlóðum. Deiliskipulag þetta byggir á forsendum endurskoðað aðalskipulags sem er nú í auglýsingu.
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd frestar málinu þar til fyrir liggur í hvaða landi aðkomuvegur fyrir lóðir liggur og felur verkefnastjóra að ræða við málsaðila.

4.Breyting á deiliskipulagi Miðbúð 3 L210761

2603021

Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Miðbúð 3 (L210762), dagsett 11. mars 2026. Breytingin felst í stækkun byggingarreits og aukningu á leyfilegu byggingarmagni í allt að 215 m².
Skipulags-, umhverfis- og samgöngunefnd hafnar málinu þar sem það samræmist ekki núgildandi Aðalskipulagi 2017-2029.

5.Valdastaðir, L126475, Hús - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3

2504027

Tekin er fyrir byggingarleyfis umsókn Marinós Marinóssonar á íbúðarhúsi í umfangsflokki 3 skv. gr 9.1.3, BR 112/2012 á jörðinni Valdastaðir L126475 sem frestað var á síðasta nefndarfundi þann 26.02.26 þar sem málinu var frestað og verkefnastjóra var falið að óska frekari gagna. Um er að ræða íbúðarhús á tveimur hæðum og hálf niður gröfnum kjallara: íbúð 0001- 403,9m2, íbúð 0101- 376,5 m2 og bílskúr 0102- 77,8 m2. Brúttóflötur samkvæmt skráningatöflu frá 22.04.25 samtals 837,7 m2. Stærð jarðar 54,9 Ha. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Sætún L126480, Sogn 2 L126468, Sogn 1 L126469 og Vegagerðinni.

6.Lóð í landi Morastaða, L126377Umsókn um breytingu á frístundalóð í íbúðarhúsalóð.

2510014

Lögð er fyrir umsókn Moniku Rögnvaldsdóttir og Hilmirs Dan Gíslasonar um breytta skráningu lóðar úr frístundalóð í íbúðarhúsalóð. Um er að ræða 10.000 m2 lóð í landi Morastaða L126377 sem ber staðfangið Morastaðir land. Stendur lóðin samliggjandi og næst þremur íbúðarhúsalóðum við sömu götu með góða aðkomu af Eyrarfjallsvegi. Áformað er að byggt verði nýtt hús á lóðinni og eldra hús sem sendur á lóðinni yrði skráð gestahús.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd frestar málinu og felur verkefnastjóra að ræða við eigendur lóða á svæðinu.

7.Lækjartún - Umsókn um stofnun lóða úr Neðri Háls L126452

2603013

Tekin er fyrir umsókn Adam Hoffritz fyrir hönd eigenda Neðri-Háls L126452 um stofnun 6440,7 m2 íbúðarhúsalóðar með heitið Lækjartún úr landi Neðri-Háls. Aðkoma frá Bollastaðavegi. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið sem er landbúnaðarland samkvæmt gildandi Aðalskipulagi.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir samhljóða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um samþykki þinglýsts eiganda upprunalands.

8.Stekkur 7, Umsókn um stofnun lóða út Neðri Háls L126452

2603012

Tekin er fyrir umsókn Adam Hoffritz fyrir hönd eigenda Neðri-Háls L126452 um stofnun 9847,9 m2 frístundalóðar með heitið Stekkur 7 úr landi Neðri-Háls. Aðkoma er um aðkomuveg að Stekks lóðunum. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið sem er frístundasvæði samkvæmt gildandi Aðalskipulagi.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir samhljóða og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar með fyrirvara um samþykki þinglýsts eiganda upprunalands.

9.Stekk 1 og 3, L206589, L206591 - Umsókn um breytingu á skráningu lóðar

2603011

Lögð er fyrir merkjalýsing vegna stækkunar á Stekk 1 L206589 og Stekk 3 L206591. Viðbótin kemur úr landi Neðra-Háls L126452. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Á aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 er svæðið flokkað sem frístundasvæði. Á Stekk 1 er matshluti 01, sumarhús. Á Stekk 3 er ekkert mannvirki. Stekkur 3 er 10136,8 m2 og verður eftir stækkun 21461,4 m2. Stekkur 1 er 10078,6 m2 og verður eftir stækkun 21742,0 m2. Búið er að hnita allar aðliggjandi landeignir og þurfa þeir eigendur ekki að skrifa undir merkjalýsingu þessa.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á afmörkunum. Með fyrirvara um að gerð verði kvöð um aðkomu í gegnum Stekk 1 fyrir lóðina Stekk 6.

10.Meðalfellsvegur 7, L126495 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2601034

Tekin er fyrir umsókn Lilju Karen Steinþórsdóttir um fyrirhuguð byggingaráform á lóðinni Meðalfellsvegur 7 L126495 breyting frá fyrri umsókn sem samþykkt var á nefndarfundi 29.01.26. Breytinga á byggingaráformum á mhl 01. Breytingin felur í sér að hætt hefur verið við byggingu sólskála og í stað verður viðbygging við mhl 01. Mhl 02 er óbreyttur frá því sem lagt var fyrir nefndina þann 29.01.26. Mhl 01 66 m2 og mhl 02 65,7 m2. Heildarbyggingarmagn 131,7 m2 á 1541 m2 lóð eða 0,08. Samkvæmt Aðalskipulagi er leyfilegt byggingarmagn lóðarinnar 0,1. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Meðalfells L126165.

11.Hjarðarholtsvegur 18, L126328 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2603018

Lögð er fyrir umsókn Vilhelms Péturs Péturssonar dags. 18.03.2026 um fyrirhuguð byggingaráform á 68,9 m2 frístundarhúsi mhl 01 og 14,7 m2 garðhúsi á lóðinni Hjarðarholtsvegur 18 L126328. Stærð lóðar er 1965 m2 og yrði nýtingarhlutfall 0,03 en 0,04 með garðhúsi. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu. Byggingin er forsmíðað timburhús.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarheimild þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist , sbr. 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Nefndin er sammála um að grenndarkynna fyrir eigendum Hjarðarholtsvegi 20, 16, 17, 15 og 13.

12.Möðruvellir hitaveita, L223473 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2603019

Lögð er fyrir umsókn Kjósarveitna dags. 20.03.2026 um fyrirhuguð byggingaráform á Hita- og vatnsveitumannvirki. Borholuhús yfir borholu MV-25 á lóðinni Möðruvöllum hitaveita L223473. Nýtt deiliskipulag er í auglýsingarferli fyrir svæðið sem tekið var fyrir var á nefndarfundi 26.02.26 og samþykkt af sveitarstjórn þann 04.03.26.
Skipulags- umhverfis og samgöngunefnd samþykkir umsóknina og er sammála um að falla frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr.44.gr Skipulagslaga 123/2010, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi. Byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, sbr. 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og að deiliskipulag fyrir svæðið hefur öðlast gildi.

13.Svæðisskipulagsnefnd fundur 143, 13.02.26

2603023

Lagt er fyrir mál til kynningar.

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 13

2603025

Lagt er fyrir afgreiðslur byggingarfulltrúa á útgefnum byggingarleyfum/heimildum á deiliskipulögðum svæðum.

Fundi slitið - kl. 17:00.